class: center, middle background-image: url(images/Omniglot-logo.png) background-size: 125px background-position: 5% 92% # Ritun ### Móðurmálskennsla Jón Ingi Hlynsson <img src="images/Ritun/skrifaF.png" width="30%" /> #### Omniglot AB #### Glærum síðast breytt: 2023-05-16 --- class: center, middle # Litaþraut í upphafi tímans Hvernig eru X-in á litin? En orðin? <img src="images/stroophrif.png" width="50%" /> --- # Að skrifa texta með heimildum .pull-left[ ### Afhverju? **Samfélagið krefst þess** að þú getir aflað þér upplýsinga, verið gagnrýnin(n) á þær og komið þeim frá þér, m.a. í rituðu máli. Þú **þjálfast í að vinna úr upplýsingum** – þegar þú skrifar texta sem byggist á heimildum þarftu að kynna þér málefni frá öllum hliðum, greina aðal- og aukaatriði og setja þau fram á skýran og skipulegan hátt. Þú **eflir gagnrýna hugsun** – ritgerðasmíð og önnur heimildaritun kallar á heimildavinnu og þú lærir og skilur betur að ekki er alltaf allt sem sýnist og að sumar heimildir eru öruggar á meðan aðrar eru óáreiðanlegar eða hreint og beint falskar. ] .pull-right[ <img src="images/Ritun/ritun1.png" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] --- # Að skrifa texta með heimildum .pull-left[ ### Afhverju? Þú verður **betri í að standa fyrir máli þínu í daglegu lífi** – heimildavinna felur í sér ákveðna rökleiðslu og samtal á milli ólíkra sjónarmiða. Ef þú þarft einhvern tímann að sannfæra einhvern (vinnuveitanda, vin, foreldri, þjónustufulltrúa) er mikilvægt að málflutningur þinn sé beinskeyttur og sannfærandi og byggður á traustum heimildum. ] .pull-right[ <img src="images/Ritun/ritun1.png" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] --- # Að skrifa texta með heimildum .pull-left[ ### Afhverju? Þú **eflist og eykur möguleika þína** – í upplýsingasamfélagi nútímans þar sem mikið magn af gögnum og heimildum er aðgengilegt öllum er mikilvægt fyrir hvern og einn að vera læs á gæði og áreiðanleika upplýsinga. Í framhaldsskóla og háskóla er gerð rík krafa um ritun, í mörgum starfsgreinum er það einnig gert og ef þú vilt starfa við ritun eða úrvinnslu texta (t.d. í sköpun, blaðamennsku eða fræðimennsku) er færni á þessu sviði alveg nauðsynleg. ] .pull-right[ <img src="images/Ritun/ritun1.png" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] --- .center[ .middle[# Heimaverkefni] ] -- .pull-left[**Skila á verkefninu 23. maí 2022** [Smelltu hér](https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/heimir/files/assets/common/downloads/publication.pdf) til að opna handbók um heimildaritun. Í þessu verkefni skrifar þú ritgerð og æfir allt sem þú mögulega getur. Mundu að: - styðjast við leiðbeiningar og gátlista - athuga vel hversu áreiðanlegar heimildir eru - fara vel með tilvitnanir, bæði beinar og óbeinar **Notaðu a.m.k. þrjár heimildir**, þar af eina úr bók eða tímariti (aðrar mega vera af netinu), og reyndu að hafa þær úr ýmsum áttum. ] -- .pull-right[Þú getur valið þér efni hér til að skrifa um: - Sjö undur veraldar - Borg/land að eigin vali - Persónuleikinn - Hönnun/Tíska - Íþrótt að eigin vali - Kynjajafnrétti - Kjarnorka - Átröskun - Leiklist - Lesblinda - Listamaður að eigin vali - Tölvufíkn og netfíkn - Réttindi unglinga - Tilfinningar - Bílar - Sjálfsmynd unglinga ] --- .center[ .middle[# Heimaverkefni] ] .pull-left[**Skila á verkefninu 23. maí 2022** með að senda póst á netfangið **jon.ingi.hlynsson@gmail.com** Ritgerðina skal skrifa í **Google Docs**. **500-1000 orð**. [Smelltu hér](https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/heimir/files/assets/common/downloads/publication.pdf) til að opna handbók um heimildaritun. ] .pull-right[ <img src="images/Ritun/write.jpg" width="816" /> ] --- .center[ .middle[# Tímaverkefni] ] ### **Leiðbeiningaritun** Veldu eitt efni til að skrifa ítarlegar leiðbeiningar með yfirskriftina: 1. Bíóferð – áður en lagt er af stað 2. Pönnukökubakstur – að tryggja sem bestan árangur 3. Lítil systkini – notkunarleiðbeiningar --- class: center middle # Fyrir næsta tíma <br> <br> Vinna í ritgerðinni (við skoðum Google Docs skjalið saman í næstu viku) Skoða bókina [Heimir: Handbók um heimildaritun](https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/heimir/files/assets/common/downloads/publication.pdf) <br> <br> --- class: center middle inverse # Takk fyrir tímann í dag