class: center, middle background-image: url(images/Omniglot-logo.png) background-size: 125px background-position: 5% 92% # Íslensk kennileiti ### Móðurmálskennsla Jón Ingi Hlynsson #### Omniglot AB #### Vorönn 2023 --- class: center middle inverse ### Textasmíði er skipulögð hugsun Að vera fær í að skrifa eflir getu okkar til þess að hugsa --- # Heimanám -- Hvað gerðir þú heima sl. tvær vikur? -- Við töluðum um: - Lestur í kjörbók - Markmiðasetningu --- # Kjörbók --- # Næstu tímar - Ritunartímar (uppbygging): - Stutt umfjöllun um ýmis íslensk kennileiti (eitt í hverjum tíma) - Sjálfstæð öflun upplýsinga (t.d. Google og Wikipedia) um það kennileiti sem grundvallar tímann - Ritun knappra textabrota - Skila í lok tímans -- Hugmyndin er svo að tvinna saman textana: - Rauði þráðurinn = íslensk kennileiti --- # Gullfoss .pull-left[ [Gullfoss](https://is.wikipedia.org/wiki/Gullfoss) er foss í Hvítá upp af Haukadal í Árnessýslu. Gullfoss og landið meðfram Hvítá **friðlýst** árið 1979. Gullfoss er í raun **tveir fossar**, efri fossinn er 11 metrar og neðri fossinn 20 metrar. **Einn vinsælasti ferðamannastaður Íslands.** ] .pull-right[ <img src="images/Kennileiti/gullfoss.JPG" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] ??? https://ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/fridlyst-svaedi/sudurland/gullfoss/ --- # Gullfoss .pull-left[ [Gullfoss](https://is.wikipedia.org/wiki/Gullfoss) er foss í Hvítá upp af Haukadal í Árnessýslu. Gullfoss og landið meðfram Hvítá **friðlýst** árið 1979. Gullfoss er í raun **tveir fossar**, efri fossinn er 11 metrar og neðri fossinn 20 metrar. Eftirfarandi reglur gilda um friðlandið: - Mannvirkjagerð og jarðrask og aðrar breytingar á svæðinu eru óheimilar án leyfis. - Gangandi fólki er heimil för um svæðið, enda sé góðrar umgengni gætt. - Akstur utan vega og merktra ökuslóða er óheimill. - Bannað er að skerða gróður, trufla dýralíf og skemma jarðmyndanir. - Notkun flygildis (dróna) er óheimil nema með leyfi Umhverfisstofnunar. ] .pull-right[ <img src="images/Kennileiti/gullfoss.JPG" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] ??? https://ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/fridlyst-svaedi/sudurland/gullfoss/ --- # Ritun og sjálfstæð öflun upplýsinga Rita stuttan texta um Gullfoss sem byggir á glærunum hér á undan, umræðu okkar og sjálfstæðri upplýsingaöflun. Skoðaðu heimildir (þ.e. vefsíður) og dragðu út aðalatriðin í samfelldan og sjálfstæðan texta. - Afritaðu og límdu inn neðst hlekki að þeim vefsíðum sem þú notast við --- # Geysir .pull-left[ [Geysir](https://is.wikipedia.org/wiki/Geysir) í Haukadal er goshver sem nú til dags lætur lítið á sér **kræla**. Geysir er einn frægasti goshver í heimi. Margir fleiri hverir eru á Geysissvæðinu, til dæmis Strokkur, Smiður og Litli-Strokkur. [Hverasvæðið var friðlýst 17. júní 2020.](https://www.frettabladid.is/frettir/geysir-fridlystur-a-17-juni/) >Geysis er fyrst getið með nafni árið 1647 og er þá mikill og ákafur goshver, en á þeim tímum gat hann gosið nokkuð reglulega. Þá þeyttu hann vatni 60 til 80 metra upp í loftið. Fyrir árið 1845 varð hann allt að 170 metrar. Eftir árið 1900 dró mikið úr gosvirkni hans og var kólnunarflötur vatnsins (yfirborðið) orðið of stórt. ] .pull-right[ <img src="images/Kennileiti/geysir.jpg" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] ??? https://timarit.is/page/3305804#page/n5/mode/2up https://timarit.is/page/1228975#page/n2/mode/2up --- # Ritun og sjálfstæð öflun upplýsinga Rita stuttan texta um Geysi sem byggir á glærunum hér á undan, umræðu okkar og sjálfstæðri upplýsingaöflun. Skoðaðu heimildir (þ.e. vefsíður) og dragðu út aðalatriðin í samfelldan og sjálfstæðan texta. - Afritaðu og límdu inn neðst hlekki að þeim vefsíðum sem þú notast við --- # Þingvellir .pull-left[ [Þingvellir](https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%9Eingvellir) eru flatir, grasi grónir vellir norðan við Þingvallavatn á bökkum Öxarár, sem rennur eftir völlunum út í Þingvallavatn, sem er stærsta náttúrulega stöðuvatn á Íslandi. Þjóðgarður var stofnaður árið 1928 og nær hann yfir Þingvelli og nánasta umhverfi þeirra. [**Alþingi**](https://www.thingvellir.is/fraedsla/saga/loegberg/) var stofnað á Þingvöllum árið 930 og kom þar saman árlega allt fram til ársins 1798. Lög um friðun Þingvalla kváðu á um að [frá ársbyrjun 1930 skulu Þingvellir við Öxará og grenndin þar vera friðlýstur helgistaður allra Íslendinga](https://www.althingi.is/lagas/130a/1928059.html). ] .pull-right[ <img src="images/Kennileiti/þingvellir.jpg" width="80%" style="display: block; margin: auto 0 auto auto;" /> ] --- # Ritun og sjálfstæð öflun upplýsinga Rita stuttan texta um Þingvelli sem byggir á glærunum hér á undan, umræðu okkar og sjálfstæðri upplýsingaöflun. Skoðaðu heimildir (þ.e. vefsíður) og dragðu út aðalatriðin í samfelldan og sjálfstæðan texta. - Afritaðu og límdu inn neðst hlekki að þeim vefsíðum sem þú notast við --- # Gullni hringurinn (Gullfoss, Geysir og Þingvellir) Í síðustu tímum höfum við kynnt okkur hvort fyrir sig. Núna ætlum við að útbúa einskonar útdrátt sem dregur aðalatriði hvers texta saman. > Ferðamenn og heimamenn sömuleiðis keppast við að fara hinn svokallaða *gullna hring*. Slíkur leiðangur samanstendur af leiðangri að Geysi, Gullfoss og í Þingvallaþjóðgarð. Ef til vill væri gaman að byrja á að skoða hið heimsfræga jarðhitasvæði Geysis. Þar er að finna bullandi hveri og þar á meðal virkasta hver Íslands, **Strokk**. Eftir þægilegt stopp þar er síðan sniðugt að halda áleiðis til Gullfoss en hann er einhver nafntogaðasti foss Íslands fyrir ógnarmátt sinn og fegurð. Við Gullfoss á maður kost á því að standa við hlið eins vatnsmesta foss Evrópu og sjá gífurlegt magn af vatni steypast ofan í tilkomumikið gil. Gullni hringurinn klárast svo með heimsókn í Þingvallaþjóðgarð en það er það svæði okkar Íslendinga sem hefur hvað mesta sögulega og jarðfræðilega þýðingu. ??? https://www.re.is/is/tour/golden-circle-direct/ --- # Heimanám - **Lesa í kjörbók**! --- class: center middle inverse # Takk fyrir tímann!