class: center, middle background-image: url(images/Omniglot-logo.png) background-size: 125px background-position: 5% 92% # Laxdæla - tími 2 ### Móðurmálskennsla ### Kafli 1-11 Jón Ingi Hlynsson #### Omniglot AB #### Glærum síðast breytt: 2023-05-16 --- background-image: url(images/Laxdæla/unnurd.jpg) background-size: 125px background-position: 92% 5% # 1. Unnur djúpúgða -- - Kaflinn fjallar um Landnámið á Íslandi -- - Unnur djúpúgða er ættmóðir persónanna -- ## Upprifjun -- 1. Hvers vegna fluttist Ketill flatnefur frá Noregi? ??? 1. Hann vildi ekki vera undirmaður Haralds hárfagra -- 2. Hvers vegna vildu synir Ketils flytjast til Íslands? ??? 2. Nóg af landi sem ekki þurfti að kaupa og þar fiskaðist vel -- 3. Unnur djúðúðga var mikið afbragð annarra kvenna. Nefnið nokkur dæmi sem sýna það. .pull-right[ ![](images/Laxdæla/aislandi.jpeg) ] ??? 3. Hún slapp úr klóm Haralds með marga menn með sér og með mikið fé --- background-image: url(images/Laxdæla/frabok/k2-1.png) background-size: 400px background-position: 92% 90% # 2. Höskulur Dala-Kollsson kaupir ambátt 1. Hvaða erindi átti Höskuldur Dala-Kollsson utan til Noregs? ??? 1. Kaupa timbur -- 2. Hvaða galli var á ambáttinni sem Höskuldur keypti? ??? 2. Hún var mállaus -- ### Umræðuefni -- - Hverju kunnið þið að segja frá um þræla og ambáttir? -- - Hver var munurinn á því að vera þræll eða ambátt og frjáls maður? -- - Hvaðan er líklegast að ambáttir Gilla hafi komið upphaflega? --- background-image: url(images/Laxdæla/frabok/k3-1.png) background-size: 400px background-position: 92% 90% # 3. Melkorka 1. Hvernig samdi Jórunni konu Höskulds og Melkorku ambátt hans? ??? 1. Þeim samdi illa saman enda var Melkorka hjákona Höskulds -- 2. Hverrar ættar var Melkorka? ??? 2. Hún var dóttir Mýrkjartans Írakonungs -- ### Til umhugsunar Hvaða tungumál ætli Melkorka hafi talað við þá Ólaf og Höskuld? ??? Sagan sniðgengur þetta vandamál, en í næsta kafla kemur fram að Melkorka kenndi Ólafi írsku. Kannski má líta svo á að hún hafi lært norrænu af því að hlusta á Höskuldsstaðafólk. Eða gerir sagan ráð fyrir að íslenskir afkomendur þess norræna fólks sem hafði haft viðdvöl á Bretlandseyjum á víkingaöld hafi verið mælt á keltneska tungu? --- background-image: url(images/Laxdæla/frabok/k4-1.png) background-size: 400px background-position: 92% 90% # 4. Ólafur pái 1. Hvernig gat Melkorka útvegað fé til utanfarar Ólafs? ??? 1. Hún greip til þeirra ráða að giftast manni sem var kallaður Þorbjörn skjúpur -- 2. Hvaða ráð átti Ólafur að hafa til að sanna móðerni sitt á Írlandi? ??? 2. Áður en Ólafur fór lét Melkorka hann hafa gullhring og sagði að faðir hennar hefði gefði henni hann að tannfé og til aukreitis við hringinn, hníf og belti sem hann átti að sýna fóstru Melkorku. Þá ætti engin vafi að vera á því hverra manna Ólafur væri. -- - Hvers vegna hafði Melkorka svona mikinn áhuga á að Ólafur sonur hennar færi til Írlands? ??? - Að hluta til er svarið í kaflanum: hún vildi að hann fengi að njóta göfugrar móðurættar sinnar. --- background-image: url(images/Laxdæla/irland.jpg) background-size: 400px background-position: 92% 90% # 5. Írlandsför 1. Segið með ykkar orðum frá fóstru Melkorku. ??? 1. Ellismellur sem hrökk í gang við að frétta af Ólafi, var orðin gömul og lúin en gekk staflaust þegar hún frétti af Ólafi -- 2. Hvers vegna vildi Ólafur ekki verða konungur yfir Írlandi? ??? 2. Því hann vildi ekki eiga á hættu að styggja syni konungs sem áttu strangt til tekið rétt á að taka við ríkidæminu eftir daga Mýrkjartans. -- .pull-left[ - Hér í kaflanum girðir höfundur fyrir þann möguleika að konung gruni að Ólafur hafi rænt sönnunargögnunum af Melkorku og þykist vera sonur hennar til þess að komast í mjúkinn hjá konungi. Hvernig? ] ??? - Konungur sagði að Ólafur væri svo líkur móður sinni að vel mætti þekkja hann af henni. --- background-image: url(images/Laxdæla/frabok/k6-1.png) background-size: 400px background-position: 92% 90% # 6. Bónorð Ólafs 1. Hvers vegna vildi Þorgerður Egilsdóttir ekki giftast Ólafi? ??? 1. Því hann var ambáttarsonur. **Athugið**: Melkorka var þó löngu orðin fráls kona, bjó á Melkorkustöðum og giftast manni sem var kallaður Þorbjörn skjúpur -- 2. Venja var að leysa tigna gesti út með gjöfum. <br> Hvað gaf Ólafur Agli að lokinni veislunni? ??? 2. Sverðið góða sem Mýrkjartan hafði gefið honum og varð Egill léttur á brún við gjöfina --- background-image: url(images/Laxdæla/kjartanogbolli.png) background-size: 600px background-position: 92% 90% # 7. Kjartan og Bolli 1. Hvers vegna var Bolli tekinn í fóstur? ??? 1. Ólafur var að leita sátta við Þorleik stjúpbróður sinn, sagði að sá er talinn minni er tekur börn annarra í fóstur og bauðst til að taka Bolla -- 2. Berið saman lýsingarnar á Kjartani og Bolla. ??? 2. Kjratan er aðalmaðurinn, hann er eins og ofurhetja og Bolli er ávallt númer tvö - **AUKA**: Erfðareglurnar sem gilda hér í sögunni koma nákvæmlega heim við Grágás, lagasafn sem til er frá þjóðveldisöld. Samkvæmt því áttu börn fædd í hjónabandi að fá allan arf ef þau voru til. Laungetin börn tóku aðeins arf ef ekki voru á lífi skilgetin börn, faðir, móðir eða systkini hins látna. Þá segir þar: „Maður á að gefa barni sínu laungetnu tólf aura, ef hann vill, fyrir ráð skaparfa síns, en eigi meira fé nema erfingar lofi.“ (Grágás 47, 62). Ekki er tekið fram að átt sé við tólf aura silfurs, en það hlýtur að vera meiningin. Gull var átta sinnum dýrara en silfur og því hefur þurft að vera á hreinu hvort átt var við í lögunum. Einfaldast er að hugsa sér að þetta hafi verið gildandi lög, hvort sem var á atburðatímanum eða á ritunartímanum. Hitt er svo hugsanlegt líka að höfundur sögunnar hafi flett upp í einhverju handriti Grágásar, fundið ákvæðið þar og notað efnisatriðið í sögu sína. --- background-image: url(images/Laxdæla/frabok/k8-1.png) background-size: 400px background-position: 92% 90% # 8. Sverðið Fótbítur 1. Hvernig komst Geirmundur inn í söguna? ??? 1. Geirmundur var óvinsæll víkingur í Noregi og smiglaði sér inn í söguna með því að bera allt sitt dót á bát Ólafs á meðan Ólafur var ekki viðstaddur. Síðan kunni Ólafur ekki við það að senda hann í burtu eins og hund. -- 2. Hvers vegna lét Þuríður bora göt á skipsbátinn? ??? 2. Til þess að tryggja að Geirmundur myndi ekki sleppa ef hann myndi reyna það -- 3. Hvers vegna skiptir Þuríður á barni sínu og sverði Geirmundar? ??? 3. Geirmundur hefur gert henni svívirðingu með því að fara án þess að skilja eftir fé til að framfæra barn þeirra. Þuríður hefnir sín á honum, bæði með því að neyða hann til að taka við barninu og ræna þeim grip sem honum var kærastur. Út úr verknaði hennar má líka lesa aðdróttun um að Geirmundur sé ekki mikið karlmenni; Þuríður felur honum að fóstra ungbarn, sem var fremur kvennastarf en karla, og tekur karlmennskutákn hans, sverðið. Til skýringar á gerð Þuríðar má einnig benda á það sem fræðimenn hafa skrifað mikið um, að fólk hafi bundist minni tilfinningaböndum við ung börn meðan mörg þeirra reyndust verða skammlíf. Fólk hafi sparað sér þá tilfinningaraun að skiljast við barn með því að binda sem minnsta ást við það þangað til það var komið nokkuð á legg. --- # 9. Draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur 1. Hvað var Guðrún Ósvífursdóttir gömul þegar hana dreymdi drauma sína? ??? 1. Hún var 13-14 ára gömul -- 2. Hvað merktu draumar Guðrúnar? ??? 2. Táknuðu allir það sama; hún myndi eignast fjóra eiginmenn og þeir myndu allir deyja -- - Það er gömul og algeng skoðun að draumar séu fyrirboðar, af þeim megi sjá framtíðina fyrir, ef þeir eru rétt ráðnir. Hvaða skoðun hafið þið á því? -- - Dreymir ykkur fyrir því sem á eftir að gerast? -- - En foreldra ykkar eða annað fullorðið fólk sem þið þekkið? -- - Hafið þið heyrt um aðrar túlkanir á eðli drauma? ??? Kenning Sigmundar Freud um drauma hefur líklega rutt mjög út hugmyndum um forsagnargildi þeirra. Samkvæmt henni eru draumar tjáning á leynilegum hugsunum í undirmeðvitund fólks. Þeir koma upp um óskir manns eða ótta, sem maður viðurkennir kannski aldrei fyrir sjálfum sér. Samkvæmt því ættu draumar Guðrúnar í mesta lagi að segja eitthvað um það sem var að brjótast í henni sjálfri um væntanleg hjónabönd sín. En slík túlkun gengur auðvitað ekki upp í sögunni, vegna þess að hún er sögð og skráð handa fólki sem trúði á forsagnargildi drauma. Kaflinn um drauma Guðrúnar beinir athygli lesenda rækilega að henni; nú vitum við að miklir atburðir eiga eftir að gerast í kringum þessa stúlku. Enda eiga draumarnir, eða öllu heldur ráðning Gests á þeim, eftir að mynda eins konar umgerð sögunnar allt til loka hennar. --- # 9. Draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur - **Fyrsti draumur Guðrúnar**: Hana dreymdi að hún væri við læk með krókfald á höfði. Henni fannst faldurinn fara sér illa og kastaði honum í lækinn. -- - *Túlkun Gests*: Hann sagði að Guðrún myndi lítið elska fyrsta eiginmann sinn og skilja við hann. -- - **Annar draumur Guðrúnar**: Hana dreymdi að hún væri stödd hjá vatni með dýrmætan silfurhring á hendi. Hringurinn rann af hendinni og í vatnið og þótti henni það mikill skaði. -- - *Túlkun Gests*: Hann sagði að annar eiginmaður hennar yrði ágætur en spáði því að hann myndi drukkna. -- - **Þriðji draumur Guðrúnar**: Hana dreymdi að hún hefði gullhring á hendi, hún studdi sig við stein þegar hún datt og hringurinn brotnaði og blæddi úr brotunum. -- - *Túlkun Gests*: Hann sagði að þriðji eiginmaður Guðrúnar myndi hafa nýja trú. Hann spáði því að þessi eiginmaður yrði drepinn. -- - **Fjórði draumur Guðrúnar**: Hana dreymdi að hún hefði gullhjálm á höfði, skreyttan gimsteinum. Hjálmurinn var þungur og steyptist ofan í sjó. -- - *Túlkun Gests*: Hann sagði að fjórði eiginmaður hennar yrði mesti höfðinginn en spáði því að hann myndi drukkna. --- background-image: url(images/Laxdæla/gudrunO.jpg) background-size: 200px background-position: 10% 5% # 10. Fyrsta hjónaband Guðrúnar 1. Lýsið stuttlega hjónabandi Guðrúnar og Þorvalds. ??? 1. Hún var eiginlega neydd í þetta hjónaband, vildi ekki vera kona Þorvalds og hann kallaði hana heimtufreka. Hann endar á því að slá hana eitt skitpi og þykir Guðrúnu það skiljanlega mikil svívirðing. Hún fer í ráðabrugg með Þórði Ingunnarsyni og hann segir henni að sauma handa honum kvenmannsyrtu og skilja við hann af þeim sökum. -- 2. Hvernig fór Guðrún að því að losna við Þorvald? ??? 2. Með því að bera það fyrir sig að hann gengi um í kvenmannsfötum. -- 3. Hverju hafði Gestur Oddleifsson spáð um fyrsta hjónaband Guðrúnar? ??? 3. Hann sagði að Guðrún myndi lítið elska fyrsta eiginmann sinn og skilja við hann. --- background-image: url(images/Laxdæla/frabok/logberg-teikning.jpg) background-size: 200px background-position: 92% 5% # 11. Annað hjónaband Guðrúnar 1. Segið í fáum orðum frá hjónabandi Guðrúnar og Þórðar. ??? 1. Guðrún og Þórður voru ekki lengi saman en henni þótti mjög vænt um hann. Bróka-Auður særði hann er hún hjó í bringu hans og hendi. Þórður drukknaði á leið heim frá Alþingi. -- 2. Hverju hafði Gestur spáð um þetta hjónaband? ??? 2. Hann sagði að annar eiginmaður hennar yrði ágætur en spáði því að hann myndi drukkna. -- 3. Þórður sagði Guðrúnu að það væri skilnaðarsök ef karl gengi í kvenskyrtu. En Guðrún segir Þórði að það varði líka skilnað ef kona gangi í karlmannsbrókum. Getur verið að Þórður hafi þekkt annað ákvæðið en ekki hitt? .pull-left[ ![](images/Laxdæla/frabok/k11-1.png) ] ??? 3. Varla. Ætli Þórður sé ekki fremur að fá Guðrúnu til þess að gefa meira upp og nefna skilnaðarsök? Kannski er Þórður eiginlega að segja: „Varstu að meina að ég ætti að skilja við Auði og þú værir þá tilbúin til að giftast mér?“ --- class: center middle # Fyrir næsta tíma ## **Kafli 12-23** --- class: center middle inverse # Takk fyrir tímann í dag