class: center, middle background-image: url(images/Omniglot-logo.png) background-size: 125px background-position: 5% 92% # Ritgerðasmíði ### Móðurmálskennsla Jón Ingi Hlynsson #### Omniglot AB #### Glærum síðast breytt: 2023-05-16 --- # Yfirferð heimaverkefna - Persónuleikatexi - Kjörbók --- # Skerf í ritgerðasmíð 1. Hugmynd að efni - hugstormun 2. Efni afmarkað - lestur, heimlidaleit 3. Beinagrind, kaflaskipting 4. Uppkast 5. Yfirlestur + athugasemdir 6. Lokaskil - Hér skiptir máli að leitast við að svara einhverri spurningu. Þeim mun meiri áhuga sem þú hefur á því að svara spurningunni, þeim mun skemmtilegra er ferlið og þeim mun betri verður ritgerðin. --- # Textasmíði er skipulögð hugsun Fyrir vikið skiptir máli að hafa áhuga á að svara **ritgerðarspurningunni**. -- Dæmi: - Efni: Persónuleiki - Spurning: Hverjar eru lífræðilegar undirstöður persónuleikans? - Efni: Tilfinningar - Spurning: Hvernig vitum við að tilfinningar séu sammannlegar, þvert á menningarheima? - Efni: Hönnun/tíska - Spurning: Hver eru áhrif "skynditísku" á umhverfið og hvernig er unnt að sporna við þeim? - Efni: Tölvuleikir - Spurning: Hvaða vitnisburður liggur að baki fullyrðingarinnar "tölvuleikjaspilun eykur ýgi meðal ungs fólks"? -- ** ýgi = árásarhneigð --- # Að meðtaka upplýsingar Að skrifa ritgerð kallar á lestur tengdan því efni sem markmiðið er að skrifa um. Hins vegar er einnig hægt að hlusta á viðtöl, horfa á myndbönd eða tala við fólk sem er vel að sér um það efni sem um ræðir hverju sinni. Fyrir vikið er mikilvægt að við séum í stakk búin að meðtaka upplýsingar og taka saman aðalartiðin sem fram koma hverju sinni. Hlustum á stutt viðtal um andlitsblindu og gerum þar næst stutta samantekt um hvað andlitsblinda felur í sér. https://www.ruv.is/frett/2022/05/09/tvo-prosent-thjast-af-andlitsblindu --- # Andlitsblinda ***Andlitsblinda*** *(fræðiheiti: prosopagnosia, úr grísku prosopon = andlit, agnosia = að þekkja ekki) er það þegar einstaklingur þekkir ekki annað fólk á andlitinu. Þetta er meðfædd brenglun í því svæði heilans sem sér um að þekkja og túlka andlit og svip. Þetta ástand hefur engin áhrif á það að þekkja hluti né heldur á almenna greind. Einnig getur andlitsblinda verið afleiðing slyss eða heilablóðfalls.* *Tvö prósent þjást af andlitsblindu*. --- # Næstu tímar Breytingar á íslensku: - Haustfrí í næstu viku - Vikur 45-48 óljósar; mín stundatafla að breytast - Mögulega hægt að halda rafrænar kennslustundir/koma á fót verkefnavinnu í gegnum netið - Vonandi hægt að taka upp þráðinn í byrjun desember - Mun láta vita í síðasta lagi eftir viku hvað verður --- # Þangað til gildir eftirfarandi heimavinna: - Lesa tvo kafla í kjörbók og skrifa útdrátt úr þeim (sbr. að skrifa samantekt á glæru hér á undan) - Skrifa stóra ritgerð - Sjá skref í ritgerðasmíði - Hugmyndin er að skrifa um 1000 orða ritgerð sem skilað er inn vikulega (ath. ekki fullkláraðri hverju sinni) með lokaskilum í desember (n.tt. 13. desember) - T.d. Fyrstu skil samanstanda af skil á hugmynd, önnur skil innihalda afmarkaða hugmynd með hlekkjum á heimildir, þriðju skil innihalda beinagrind og kaflaheiti, fjórðu skil innihalda fyrsta uppkast. - Þannig færðu tækifæri til að æfa þig í að rita texta, fá athugasemdir um hvað megi betur fara og leiðbeiningar um hvar megi nálgast efni um það sem þú velur að skrifa um --- class: center middle inverse # Takk fyrir tímann í dag