class: center, middle background-image: url(images/Omniglot-logo.png) background-size: 125px background-position: 5% 92% # Rökfræði seinni tími ### Móðurmálskennsla Jón Ingi Hlynsson #### Omniglot AB #### Glærum síðast breytt: 2023-05-16 --- class: center middle inverse ### Textasmíði er skipulögð hugsun Að vera fær í að skrifa eflir getu okkar til þess að hugsa --- # Heimanám -- Förum yfir textana (með og á móti breytingu klukkunnar) frá því í síðustu viku --- # Kjörbók Segja mér frá einni sögu --- # Í dag Við ætlum að klára að skoða: -- - rök og röksemdafærslu -- - rökvillur -- - muninn á röksemdafærslum, staðhæfingum og fortölum --- # Fortölur -- Byrjum á stuttri myndbandsklippu um fortölur Í eftirfarandi myndbandi er talað stuttlega um fortölur <iframe width="560" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/h0O2v6Ii5To?clip=UgkxRN_LsxNzlDu9te3L_YjPQWmNDtQgMniv&clipt=EMCCARiduwQ" title="YouTube video player" frameborder="0" allow="accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture" allowfullscreen></iframe> --- # Staðhæfingar og röksemdir **Staðhæfing**: -- Í merkingarfræði eru merkingar setninga eða segða oft flokkaðar í nokkrar gerðir og þá er STAÐHÆFING ein þeirra. Eitt einkenni **staðhæfinga (fullyrðinga)** er það að þær eru **annaðhvort sannar eða ósannar**. -- Fyrir vikið... -- eru þær yrðingar sem **sýna fram á eitthvað** og/eða **sannfæra um eitthvað** kallaðar **röksemdir**. -- **Rök eða ástæður** sem styðja staðhæfingu eða yrðingu köllum við *röksemdafærslu*. --- # Röfræði ## Afleiðsla Afleiðslurök gefa niðurstöðu sem leiðir óhjákvæmilega af forsendunum. ***EF*** forsendur eru sannar *og* rökfærslan gild eða réttmæt þá *hlýtur* niðurstaðan að vera sönn. -- Klassískt dæmi: > Allir menn eru dauðlegir > Sókrates er maður > Sókrates er dauðlegur --- # Afleiðsla Fjórar ólíkar afleiðslur: **Gild afleiðsla**: - staðfesta forlið - neita bakhlið **Ógild afleiðsla**: - staðfesta baklið - neita forlið ??? abduction --- # Gild afleiðsla: Staðfestir forlið Formið: Ef a, þá b, a Þá b -- Dæmi: **Ef** tiltekin lífvera er köttur **þá** er hún spendýr. Snúður er köttur. Snúður er spendýr. --- # Gild afleiðsla: Neitar bakhlið Formið: Ef a, þá b Ekki b Ekki a -- Dæmi: **Ef** tiltekin lífvera er köttur **þá** er hún spendýr. Kristján krókódíll er **ekki** spendýr. Kristján krókódíll er ekki köttur. --- # Ógild afleiðsla: Staðfestir baklið Formið: Ef a, þá b b Þá a -- Dæmi: **Ef** tiltekin lífvera er köttur **þá** er hún spendýr. Snati er spendýr. Snati er köttur. --- # Ógild afleiðsla: Neitar forlið Formið: Ef a, þá b Ekki a Þá ekki b -- Dæmi: **Ef** tiltekin lífvera er köttur **þá** er hún spendýr. Snati er ekki köttur. Snati er ekki spendýr. --- # Forsendur og niðurstaða Gild röksemdafærsla getur haft: - ósannar forsendur og ósanna niðurstöðu - ósannar forsendur en sanna niðurstöðu - sannar forsendur og sanna niðurstöðu Ef niðurstöðuna leiðir **ekki** af forsendunum er rökfærslan ógild. --- # Hvað er eftirfarandi ræksemdarfærsla? Allir kóngar eiga hirðfífl. Grettir Bambi er kóngur. Grettir á hirðfífl. Þetta er dæmi um: a. röksemd sem sýnir fram á fáránleika b. ógilda afleiðslu c. gilda afleiðslu d. innbyggða röklega mótsögn e. heimsku -- Rétt svar: C, afleiðslan er gild --- # Aðleiðsla/tilleiðsla Aðleiðsla styður líklega niðurstöðu sem leiðir þó ekki óhjákvæmilega af forsendunum. -- Aðleiðsla sem rennir stoðum undir niðurstöðu er kölluð sterk eða öflug. Annars er hún kölluð veik. -- Dæmi: Menn með mikið sjálfstraust vinna í 90% tilvika. Íslenska karlalandsliðið er með mikið sjálfstraust. Það eru 90% líkur á því að Íslendingar vinni næsta leik í undankeppninni. ??? induction --- # Íleiðsla Þá er farið frá skýringarefninu (t.d. fyrirbærinu) og að líklegustu skýringunni -- Formið: Fyrirbæri p Tilgáta h skýrir p Engin önnur tilgáta skýrir p betur h er líklega rétt -- Dæmi: Það eru stígvélaför í moldinni Gummi á svona stígvél Engin önnur skýring er betri Gummi átti leið hér um -- Íleiðslur eru mikið notaðar í vísindum ??? Inference to the best explanation --- # Forsendurbrestir og rökvillur Um er að ræða forsendubrest ef að forsendur eru: - Ótækar - Forsendurnar eru hæpnar - Óviðeigandi - Forsendurnar skipta engu máli fyrir sannleiksgildi niðurstöðunnar - Ónægar - Það vantar upp á forsendurnar til að þær getir talist styðja niðurstöðuna --- # Ótækar forsendur Klifun, **hringskýring** eða að gefa sér það sem á að rökstyðja: -- Niðurstaðan er notuð sem ein af forsendunum -- Dæmi: *Af hverju sofna menn af svefnlyfi?* *Það gerir svefnmátturinn* ??? Begging the question -- **Gerviklemma** eða afar(slæmir)kostir: -- Afarkostir settir fram þegar í raun og veru eru til fleiri valkostir ??? (false dilemma) -- Dæmi: *Annaðhvort skýra vísindi þetta til fulls eða þetta er kraftaverk* --- # Óviðeigandi forsendur **Ógild merkingarjöfnun**: -- Orð notað í tvenns konar merkingu ??? (equivocation) -- Dæmi: *Aðeins menn eru skynsamir.* *Engin kona er maður.* *Engin kona er skynsöm.* -- **Ógild samsetning**: -- Það sem á við um hluta á líka við um heildina ??? (composition) -- Dæmi: *Atóm eru líflaus. Þess vegna er allt sem er gert úr atómum líflaust.* -- **Óréttmæt aðgreining**: -- Það sem á við um heild er talið eiga við um hluta. ??? (division) -- Dæmi: *Við erum á lífi. Við erum gerð úr atómum. Því hljóta atóm að vera lifandi.* --- # Óviðeigandi forsendur frh. **Ad hominem**: -- Veist er að þeim sem heldur einhverju fram, ekki að staðhæfingunni -- Dæmi: *„Ekki trúa neinu sem þingmenn halda fram, þeir eru allir jafn spilltir.”* -- **Upprunarök**: -- Uppruni röksemdar er talinn rök með eða á móti röksemdinni sjálfri ??? (genetic fallacy) -- Dæmi: *„Við skulum ekki trúa Siggu. Hún trúir á álfa.”* -- **Yfirvaldsrök**: -- Rökstuðningur með því að vísa til þess að sérfræðingar hafi haldið einhverju fram ??? (appeal to authority) -- Dæmi: *„Michael Jordan borðar þetta morgunkorn.”* -- **Vinsældarök**: -- Rökstuðningur með vísun í það sem allir eða flestir gera ??? (appeal to the masses) -- Dæmi: *„Það eru nú allir sammála um þetta.”* --- # Óviðeigandi forsendur frh. **Hefðarrök**: -- Rökstutt með vísun í hefð ??? (appeal to tradition) -- Dæmi: *„Svona höfum við alltaf gert.”* -- **Vankunnátturök**: -- Það að geta ekki hafnað staðhæfingu er notað sem rök fyrir sannleiksgildi hennar ??? (appeal to ignorance) -- Dæmi: *„Lagarfljótsormurinn hlýtur að vera til fyrst enginn hefur getað afsannað tilvist hans.”* -- **Hræðslurök**: -- Að nota hræðslu sem áróðurstæki ??? (appeal to fear) -- Dæmi: *„Ef þið takið ekki þátt í stríðinu gegn hryðjuverkum þá munið þið þurfa að berjast við hryðjuverkamenn í ykkar heimalandi.”* -- **Grýlurök/strámannsrök**: -- Andstæðingi eru gerðar upp skoðanir ??? (straw man) Dæmi: *„Vinstri flokkarnir vilja bara byltingu á öllu og að internetið eigi að leysa öll vandamál. Þá er ekki hægt að kjósa.”* --- # Ónægar forsendur -- **Fljótfærnisleg alhæfing**: -- Að draga ályktun á grundvelli of fárra athugana eða á grundvalli úrtaks sem var ekki slembiúrtak ??? (hasty generalization) -- Dæmi: *„Ég varð vitni að því að Bubbi miðill er loddari. Þeir eru það allir, þessi miðlar.”* -- **Ógild samlíking**: -- Tveimur fyrirbærum líkt saman sem í raun eru ólík ??? (faulty analogy) -- Dæmi: *„Fyrst jörðin er með vatn, andrúmsloft og lífverur, og Mars hefur vatn og andrúmsloft þá hljóta að vera lífverur á Mars.”* -- **Post hoc, ergo propter hoc**: -- Ef b gerðist á eftir a þá orsakaði a b -- Dæmi: *„Ég fór í meðferð og nú líður mér betur.”* -- **Á hálum ís**: -- Þegar fullyrt er að tiltekin athöfn leiði sjálfkrafa til atferliskeðju. Getur verið réttmætt en oft ekki. ??? (slippery slope) -- Dæmi: *„Ef þú kennir ekki biblíusögur þá endar það í siðspillingu.”* --- # Tölulegar rökleysur Oft eru tölur notaðar sem yfirvald og/eða til að villa fyrir um: -- **Villandi meðaltöl**: Staðtölur eru ekki alltaf lýsandi fyrir dreifingu Dæmi: *„Skattalækkanir verða 100 þúsund krónur, að meðaltali.”* -- **Ónógar upplýsingar** Dæmi: *„Kaffidrykkja tvöfaldar hættuna á krabbameini í blöðruhálskirtli.”* Hér vantar upplýsingar um hversu mikil hættan er á slíku krabbameini -- **Óljós samanburður** Dæmi: *„Höfuðverkjalyfið Verkjabani er 50% betra” * Betra en hvað? --- # Spurningar? --- # Verkefni Á glærunum má finna 20 rökvillur með dæmum. Veldu 5 rökvillur og búðu til nýtt dæmi --- # Bókin *Neistar* <iframe src="https://drive.google.com/file/d/1Rndg_POAxbuuZrqKCpEpmkzKzQtYZgZg/preview?showcase=0" width="100%" height="600" data-external="1"></iframe> --- # Fyrir næsta tíma Lesa í kjörbók Klára tímaverkefnið Skoða 1. kafla í bókinni *Neistar* --- class: center middle inverse # Takk fyrir tímann!