class: center, middle background-image: url(images/Omniglot-logo.png) background-size: 125px background-position: 5% 92% # Síðasti tími skólaársins! ### Móðurmálskennsla Jón Ingi Hlynsson <img src="images/Sumar/sun1.jpg" width="30%" /> #### Omniglot AB #### Glærum síðast breytt: 2023-05-16 --- # Dagskrá dagsins í dag -- Spurningar úr fyrri tímum? -- Skrifum áætlun fyrir sumarið. -- Förum svo í nokkra leiki. --- # Stutt ritunarverkefni Skrifaðu niður hvað þú ætlar að gera í sumar. Til dæmis: - Ætlar þú að lesa eitthvað? - Ferð þú í ferðalag? --- # Frúin í Hamborg Yfirleitt leika tveir þennan leik, annar spyr og hinn svarar. Í fyrstu spurningunni vill sá sem spyr vita hvað leikmaðurinn gerði við peningana sem frúin í Hamborg gaf honum. Sá sem svarar má ekki nota orðin: já , nei , svart og hvítt því þá er hann úr leik. --- # Hver er persónan? Leikurinn gengur út að hugsa sér persónu. Aðrir mega spyrja já og nei spurninga um persónuna. Markmiðið er að geta getið sér til um hvaða persónu um er að ræða. --- # Hengimann Einn er stjórnandi og velur hann sér orð. Næst setur hann jafnmörg strik á töfluna í beina röð eins og stafirnir eru margir í orðinu sem hann valdi. Hinir nemendurnir í bekknum eiga að segja stafi og reyna að giska á hvaða orð stjórnandinn valdi sér. Ef nemendur segja staf sem er ekki í orðinu, skrifar stjórnandi þann staf á töfluna. Fyrir hvern staf sem er vitlaus, á stjórnandi að teikna mann sem hangir á hóli. --- class: center middle inverse # Takk fyrir veturinn! ## Gleðilegt sumar!